Sælgætisgerðin Góa-Linda ehf. 

Sælgætisgerðin Góa er opinberlega stofnuð þann 1. janúar 1968 af Karli Ágústssyni og Helga Vilhjálmssyni, en sá síðarnefndi er enn í dag framkvæmdarstjóri fyrirtækisins. Helgi er fæddur í vesturbænum í Reykjavík árið 1942. Fyrstu kynni af faginu urðu á fyrri hluta sjöunda áratugarins.

Fyrsta aðsetur Góu var í 120 fm leiguhúsnæði að Súðarvogi 18, en þangað var reyndar fyrst flutt árið 1968. Þar var sett upp ein karamelluvél til þess að byrja með. Sökum smæðar vörunnar þurfti að finna stutt og grípandi nafn á hana, en þess vegna varð Góa fyrir valinu.

Árið 1970 fluttist starfsemin niður á Grandaveg 33, en þar hófst árið 1973 framleiðsla á Hraun-súkkulaðinu sem upp frá því hefur skipað veglegan sess sem vinsælasta framleiðsluafurð fyrir-tækisins. Óhætt er að segja að tegundin hafi verið sett til höfuðs pólska Prins Pólóinu sem þá hafði mjög sterka stöðu á markaðnum. Í kjölfar Hraunsins fylgdi síðan framleiðsla á annari vinsælli afurð sem var kókossúkkulaðið Æði. Hafa skal í huga að á þessum tíma var súkkulaðiflóra landsmanna ekki mjög fjölbreytt sökum hárra tolla á innfluttu sælgæti, en eins og kunnugt er var þeim aflétt árið 1980.

Árið 1974 var Góu sagt upp húsnæðinu út á Granda og eftir miklar þreifingar var ákveðið að reisa nýbyggingu fyrirtækisins á Reykjavíkurvegi 72 í Hafnarfirði. Byggingin var tekin í notkun árið 1975, en þar var starfsemin til ársins 1986. Á árunum 1982-1983 úthlutaði Hafnarfjarðarbær lóðum við Bæjarhraun, en þá var svæðið sem kennt er við Hraunin í hraðri uppbyggingu sem iðnaðarhverfi. Vegna smæðar úthlutaðra skika þurfti Helgi að sækja um þrjár lóðir sem voru á sama stað, við Bæjarhraun 24. Athafnasvæðið þar er um 1800 fm og þar af voru um 1200 fm undir sjálfa verksmiðjuna. Þrátt fyrir það sprengdi húsið allt utan af sér. Þaðan af fékk Góa samþykkta 20.000 fm lóð við Garðahraun 2 sem er á mörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Þangað flutti Góa-Linda ehf. alla sína starfsemi 2005 í glæsilegt 7000 fermetra húsnæði.

Árið 1993 runnu í eina sæng tvær rótgrónustu og ástsælustu sælgætisgerðir landsins. Hér var annars vegar um að ræða Góu í Hafnarfirði og hins vegar Lindu á Akureyri. Hin síðarnefnda er upphaflega stofnuð árið 1949 og var lengi vel með aðsetur sitt á Hólabraut 16 á Akureyri, en verksmiðjuhúsið var staðsett að Hvannavöllum 10.
Í september 2002 keypti svo Sælgætisgerðin Góa-Linda ehf. rekstur lakkrísgerðarinnar Drift sf. sem framleiðir á meðal annars Appollo og Krumma lakkrís og jók þannig enn um betur markaðshlutdeild fyrirtækisins á sviði framleiðslu og dreifingar á sælgæti.

Samhliða framleiðslu flytur fyrirtækið einnig inn sælgæti frá mörgum löndum sem dreift er til söluturna og dreifingar-aðila.

Sælgætisframleiðslan á seinni árum hefur verið í stöðugri framþróun og sífellt leitað leiða við að auka sölunna. Í kjölfar breyttra neysluhátta hafa svonefndir Hraunbitar og Æðibitar í kössum sífellt sótt í sig veðrið á meðal neytenda og því hefur salan á stykkjunum sjálfum dregist saman í réttu hlutfalli. Aðrar tegundir sem vert er að minnast á í framleiðslulínunni eru t.d. Toffí, Prins, Flórída og Brak. Með samrumanum við Lindu bættust við t.d. Lindubuff, og Conga að ógleymdu hinu ástsæla Lindusúkkulaði. Síðan 1995 hefyr fyrirtækið síðan verið að fikra sig áfram við framleiðslu á páska-eggjum sem hafa gefið mjög góða raun á markaðnum.

Góa-Linda ehf. er í dag næststærsti sælgætisframleiðandi landsins. Starfsmannafjöldinn er um 50 manns og hafa sumir þeirra verið hjá fyrirtækinu í yfir 30 ár.